Svefnpláss er fyrir 8 fullorðna. Á hæðinni er stofa, eldhús, bað og tvö svefnherbergi sem í eru tvíbreið rúm ásamt barnarúmi í öðru herberginu. Á efri hæðinni er svefnherbergi með hjónarúmi og tveimur einstaklingsrúmum. Húsið er miðsvæðis í bænum steinsnar frá íþróttahúsinu 
og sundlauginni og í göngufæri á golfvöllinn.