Orlofshúsið Varmahlíð er fyrir 8 manns

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi. Í einu herbergi er hjónarúm. Í einu herbergi er  2 x 80 cm. rúm og í öðru er 120 cm rúm og efri koja. Svefnsófi er í stofu sem hægt er að draga í sundur og  breyta í 140 x 200 cm rúm. Sængur og koddar eru á staðnum. Eitt barnarúm og  barnastóll. Bústaðurinn er fullbúinn húsgögnum og heimils- og raftækjum og sjónvarp.  Borðbúnaður miðast við 10 manns. Á verönd er heitur pottur, útihúsgögn og gasgrill.

Lín, tuskur og þrif

 Félagsmenn þurfa að koma með (lín) þ.e. lak, sængur- og koddaver og handklæði.  Sömuleiðis þarf að hafa meðferðis viskastykki, borðklúta/þrifaklúta, uppþvottalög,  sápu, klósettpappír og plastpoka. Þrífa skal vel eftir dvöl og fylgja leiðbeiningum sem  eru í húsinu. Refsiþrifagjald” (15.000 kr.) getur verið innheimt ef vankantar eru á  þrifum.

Skildu við bústaðinn eins og þú vilt koma að honum

 Við brottför skal tæma og þrífa heita pottinn, grill skal þrífa vel, og ef gaskútur tæmist  er viðkomandi beðinn að fara með hann til áfyllingar, taka greiðslukvittun og senda á skrifstofu félagsins til greiðslu. Í lok dvalar skal allt sorp fjarlægt. 

Athugið

 Félagsmaður má ekki framselja leigurétt eða leyfa öðrum að dvelja í sínu nafni.  Leigutaki ber ábyrgð á orlofshúsinu og innanstokksmunum meðan á dvöl stendur.

Umsjón

 Hafa samband við skrifstofu SLFÍ, sem er opin frá kl.10.00 til 16.00 virka daga og á  föstudögum frá kl. 10.00 til 12.00, í síma 553-9494 sömuleiðis má hafa samband við  Gunnar Örn Gunnarsson í síma 863-9471

Aðrar upplýsingar

Gæludýr leyfð.