Orlofshúsið Sigurhæð er fyrir 7-9 manns

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi. Í hjónaherbergi er rúm 130 x 200 cm. Stærra barnaherbergið er með neðri koju sem er 130 x 200 cm. og efri koja er 80 x 200 cm. Minna herbergið er með tveimur kojum sem eru 70 x 200 cm.. Svefnsófi er í stofu sem  hægt er að draga í sundur og breyta í 140 x 200 cm rúm. Sængur og koddar eru á  staðnum. Eitt barnarúm og barnastóll. Bústaðurinn er fullbúinn húsgögnum og heimils- og raftækjum, sjónvarp og nettenging. Borðbúnaður miðast við 10 manns. Á verönd er heitur pottur, útihúsgögn og gasgrill auk þess er gufubað á staðnum. Þvottavél er í geymslu.

Lín, tuskur og þrif

Félagsmenn þurfa að koma með (lín) þ.e. lak, sængur- og koddaver og handklæði.  Sömuleiðis þarf að hafa meðferðis viskastykki, borðklúta/þrifaklúta, uppþvottalög,  sápu, klósettpappír og plastpoka. Þrífa skal vel eftir dvöl og fylgja leiðbeiningum sem  eru í húsinu. Refsiþrifagjald(15.000 kr.) getur verið innheimt ef vankantar eru á  þrifum.

Skildu við bústaðinn eins og þú vilt koma að honum

Við brottför skal tæma og þrífa heita pottinn, grill skal þrífa vel, og ef gaskútur tæmist  er viðkomandi beðinn að fara með hann til áfyllingar á Þjónustumiðstöð Úthlíð og setja  á reikning. Í lok dvalar skal allt sorp fjarlægt.

Athugið

Félagsmaður má ekki framselja leigurétt eða leyfa öðrum að dvelja í sínu nafni. Leigutaki ber ábyrgð á orlofshúsinu og innanstokksmunum meðan á dvöl   stendur.

Umsjónaraðili

Úthlíð - ferðaþjónusta sími 699-5500 - Securitas sér um hliðið

Aðrar upplýsingar

Gæludýr leyfð. Gott að hafa með sér skóflu á vetrartíma.