Orlofshúsið er um það bil 50 fermetra jarðhæð með þvottahúsi í kjallara. Á hæðinni eru stofa, eldhús, baðherbergi og tvö svefnherbergi með rúmum fyrir fjóra í tveimur tvíbreiðum rúmum. Í húsinu eru sængurföt fyrir sex, án sængurvera. Það er búið húsgögnum í stofu og borðkrók fyrir fjóra, borðbúnaði fyrir tíu manns, útvarpi, sjónvarpi, barnarúmi, barnastól og öðrum lausamunum sem eðlilegt er að fylgi til venjulegs heimilishalds. Í kjallara er þvottavél og örbylgjuofn og fyrir utan húsið afgirtur sólpallur.