Húsið er 67 fermetrar að grunnfleti og risið 57 ferm. Svefnaðstaða er fyrir 4-6 auk barnarúms. Í eldhúsi er  eldavél með bakaraofn og örbylgjuofn. Borðbúnaður er fyrir 10. Þvottavél, sjónvarp og útvarp með geislaspilara. Gasgrill.

Leigutaki þarf að hafa með sér sængurfatnað (lín), handklæði, diskaþurrkur, þvottaefni og þrifaklúta, wc pappír og annað sem snýr að hans persónulegu þörfum.

Ganga skal vel um húsið og umhverfi þess, ræsta vel og sérstaklega fyrir brottför. Leigutaki ber ábyrgð á öllum búnaði á leigutímanum og skuldbindur sig til að bæta tjón, sem  verða kann af hans völdum, eða þeirra sem dveljast á hans vegum í húsinu. Minnt er á að reykingar og gæludýahald er bannað í flestöllum orlofshúsum og -íbúðum SLFÍ.

Dvalargestir fá frítt í golf á golfvellinum Mostra. Veiðileyfi fást í Baulavallavatni og í Hraunsfirði.

Húsið ber að rýma í síðasta lagi kl. 12 á föstudegi og nýir leigjendur geta komið inn eftir kl. 15. Skilum húsinu  eins og við viljum taka við því.


Lyklar eru afhentir á skrifstofu SLFÍ, Grensásvegi 16, Reykjavík. Sími 553-9493.