Hruni er sumarhús skammt austan og ofan við Hellissand á Snæfellsnesi. Bústaðurinn er í göngufæri við þorpið og norðan við hinn sögufræga Snæfellsjökul sem blasir við augum frá húsinu. Aðalhæð bústaðarins er 45 fermetrar. Í húsinu eru alls 7 svefnstæði á tveimur hæðum og auk þess 6 svefndýnur.  Í stofu er sjónvarp og DVD spilari. Baðherbergi er með sturtu og þvottavél. Uppþvottavél í eldhúsi. Á efri hæðinni er stórt svefnloft með einu lokuðu svefnherbergi með tveimur rúmum og annað svefnpláss þar er með þremur rúmum og sex dýnum. Alls eru því í húsinu sjö rúm og sex dýnur, það er ágætis svefnpláss fyrir 12-13 manns.