Íbúðin við Fellsmúla 16 er fyrir 6 manns

Íbúðin er þriggja herbergja. Hjónarúm er í öðru herberginu en tvö rúm í hinu 80 x 200 cm.  Svefnsófi er í stofu sem hægt er að draga í sundur og
breyta í 140 x 200 cm rúm. Sængur og koddar eru á staðnum, að auki er eitt barnarúm  og barnastóll. Íbúðinni fylgir allur almennur búnaður sem eðlilegt er að fylgi  heimilishaldi. Borðbúnaður er fyrir 10 manns, sjónvarp og nettenging. Þvottavél í kjallara hússins sem er sameign. Baðherbergi er með sturtu.  Á svölum er gasgrill.

Lín, tuskur og þrif

Félagsmenn þurfa að koma með (lín) þ.e. lak, sængur- og koddaver og handklæði.  Sömuleiðis þarf að hafa meðferðis viskastykki, borðklúta/þrifaklúta, uppþvottalög, sápu, klósettpappír og plastpoka. Þrífa skal vel eftir dvöl og fylgja leiðbeiningum sem eru í íbúðinni. “Refsiþrifagjald” (15.000 kr.) getur verið innheimt ef vankantar eru á   þrifum.

Skildu við íbúðina eins og þú vilt koma að henni

Við brottför skal þrífa grillið vel og ef gaskútur tæmist er viðkomandi beðinn að fara    með hann til áfyllingar, taka greiðslukvittun og senda á skrifstofu félagsins til greiðslu,  slfi@slfi.is  Í lok dvalar skal allt sorp fjarlægt.

Athugið

Félagsmaður má ekki framselja leigurétt eða leyfa öðrum að dvelja í sínu nafni. Leigutaki ber ábyrgð á íbúðinni og innanstokksmunum meðan á dvöl stendur.

Umsjón

Umsjónarmaður er Gunnar Örn Gunnarsson, gsm 863-9471. Einnig má hafa samband  við skrifstofu félagsins frá kl. 10.00 til 16.00 virka daga, og á föstudögum frá kl.10.00 til  12.00, í síma  553-9494.

Aðrar upplýsingar

  • Hægt er að leigja lín á skrifstofu félagsins þ.e. rúmföt, baðhandklæði, handklæði,  viskustykki og borðtusku.
  • Í boði að panta þrif á íbúð.