Húsið er tveggja hæða og er þessi íbúð á neðri hæð. Tvær íverur eru á jarðhæð og forstofa sameiginleg. Úr forstofunni er komin inn í gang þaðan sem gengið er inn í aðrar vistaveru: Eldús og stofa í einu rými, svefnherbergi með tvíbreiðurúmi og koju og litla svefnaðstöðu þar sem tveir geta sofið, tvíbreiður svefnsófi er í stofu.  Baðherbergi með sturtu.  Svefnaðstaða er fyrir 8, sængur og koddar fyrir 8 en sængurfatnaður fylgir ekki. Aukadýnur eru í þvottahúsi.  Íbúðinni fylgir  allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi, borðbúnaður fyrir 6,  útvarp, sjónvarp, dvd spilari. Gasgrill við inngang neðri hæðar er ætlað fyrir báðar íbúðir á neðri  hæð. Þvottahús á neðri hæð að Hrafnagilsstrætis 23 (í bílskúr við hlið íbúða) er fyrir bæði orlofshús Stafsmannafélags Landspítala og þar eru þvottavél og þurrkari. Gasgrill og útihúsgögn ekki til staðar yfir vetrartímann.