Húsið er tveggja hæða og er þetta herbergi á neðri hæð. Tvær íverur eru á jarðhæð og forstofa sameiginleg. Úr forstofunni er komin inn í stórt herbergi með tvíbreiðu rúmi og svefnsófa. Borð og stólar fyrir 3. Eldunaraðstaða er í þvottahúsi þar er eldhúsinrétting á einum vegg með eldunarhellum og ísskáp. Sturtuklefi er staðsettur í þvottarhúsinu en salerni er sér. Þessi aðstaða er einungis fyrir íbúa herbergis . Svefnaðstaða er fyrir 2-3, sængur og koddar fyrir 3 en sængurfatnaður fylgir ekki. Aukadýnur eru í þvottahúsi.  Íbúðinni fylgir  allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi, borðbúnaður fyrir 3,  útvarp, sjónvarp, dvd spilari. Gasgrill við inngang neðri hæðar er ætlað fyrir báðar íbúðir á neðri  hæð. Þvottahús á neðri hæð að Hrafnagilsstrætis 23 (í bílskúr við hlið íbúða) er fyrir bæði orlofshús Stafsmannafélags Landspítala og er þar  þvottavél og þurrkari..