Húsið er tveggja hæða og er þessi íbúð á efri hæð. Úr forstofunni er komin inn í gang þaðan sem gengið er inn í aðrar vistaveru: Stórt eldhús, stofu  vel búin húsgögnum þar á með góðum svefnsófa fyrir tvo. Tvö svefnherbergi  og eru tvíbreið rúm  og kojur í báðum herbergjum. Baðherbergi með sturtu. Svefnaðstaða er fyrir 10 og auk þess dýnur í geymslu- og þvottarými á neðri hæð. Sængur og koddar fyrir 10 en sængurfatnaður fylgir ekki. Íbúðinni fylgir allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi, borðbúnaður fyrir 12, uppþvottavél, útvarp, sjónvarp dvd. spilari. Gasgrill á svölum við inngang.  Þvottahús á neðri hæð að Hrafnagilsstrætis 23 (í bílskúr við hlið íbúða) er fyrir bæði orlofshús Stafsmannafélags Landspítala og er þar  þvottavél og þurrkari. gasgrill og útihúsgögn ekki til staðar yfir vetrartímann.