Húsið er tveggja hæða og er þessi íbúð á neðri hæð. Tvær íbúðir eru á jarðhæð og forstofa sameiginleg. Úr forstofunni er komin inn í lítið tvískipt rými þar sem er annar vegar tvíbreitt rúm á milli veggja og hins vegar eldhúskrókur með ísskáp og eldunarhellu. Beint á móti íbúðinni er baðherbergi með sturtu. Svefnaðstaða er fyrir 2, sængur og koddar fyrir 2 en sængurfatnaður fylgir ekki. Íbúðinni fylgir allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi, borðbúnaður fyrir 4, útvarp, sjónvarp. Gasgrill á sólpalli er ætlað fyrir báðar íbúðir á neðri hæð. Þvottahús á neðri hæð er fyrir bæði orlofshús Starfsmannafélags Landspítala og er þar þvottavél og þurrkari.