Húsið er tveggja hæða og er þessi íbúð á neðri hæð. Tvær íbúðir eru á jarðhæð og forstofa sameiginleg. Úr forstofunni er komin inn í eldhúsið og þaðan er gengið inn í borðstofu og stofu, baðherbergi með sturtu og tvö svefnherbergi, annað með tvíbreiðu rúmi og hitt með koju og einbreiðu rúmi. Tveggja manna svefnsófi er í stofu og er því svefnaðstaða fyrir 7, auk þess dýnur í geymslu- og þvottarými. Sængur og koddar fyrir 8 en sængurfatnaður fylgir ekki. Íbúðinni fylgir allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi, borðbúnaður fyrir 12, eldavél, uppþvottavél, útvarp, sjónvarp dvd. spilari. Gasgrill á sólpalli er ætlað fyrir báðar íbúðir á neðri hæð. Þvottahús á neðri hæð er fyrir bæði orlofshús Starfsmannafélags Landspítala og er þar þvottavél og þurrkari. Gasgrill og útihúsgögn eru ekki til staðar yfir vetrartímann