Húsið er tveggja hæða og er þessi íbúð á efri hæð. Úr forstofunni er komin inn í rúmgott herbergi með tvíbreiðu rúmi, þaðan er gengið inn í lítið eldhús og baðherbergi með sturtu þar fyrir innan. Svefnaðstaða er fyrir 2 og auk þess dýnur í geymslu- og þvottarými á neðri hæð. Sængur og koddar fyrir 2 en sængurfatnaður fylgir ekki. Íbúðin fylgir allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi, borðbúnaður fyrir 4, eldunarhellur, útvarp og sjónvarp. Gasgrill á svölum við inngang. Þvottahús á neðri hæð er fyrir bæði orlofshús Starfsmannafélags Landspítala og eru þar þvottavél og þurrkari. Gasgrill og útihúsgögn eru ekki til staðar yfir vetrartímann.