Húsið er tveggja hæða og er þessi íbúð á efri hæð. Tvær íbúðir eru á hæðinni og forstofan sameiginleg. Úr forstofunni er komin inn í stórt hol, þaðan sem gengið er inn í aðrar vistaveru: Stórt eldhús, borðstofu og stofu  mjög rúmgóð og vel búin húsgögnum þar á með góðum svefnsófa fyrri tvo. Tvö svefnherbergi, tvíbreitt rúm í öðru, koja og einbreitt rúm í hinu. Gott baðherbergi með sturtu. Svefnaðstaða er fyrir 7 og auk þess dýnur í geymslu og þvottarými á neðri hæð. Sængur og koddar fyrir 8 en sængurfatnaður fylgir ekki. Íbúðin fylgir allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi, borðbúnaður fyrir 12, uppþvottavél, útvarp, sjónvarp, dvd. spilari. Gasgrill á svölum við inngang er ætlað fyrir báðar íbúðir á efri hæð. Þvottahús á neðri hæð er fyrir bæði orlofshús Starfsmannafélags Landspítala og eru þar þvottavél og þurrkari. Gasgrill og útihúsgögn er ekki til staðar yfir vetrartímann.