Í bústaðnum sem er um 140fm, eru stofa, borðstofa og eldhús í einu rými. Fjögur svefnherbergi, í einu þeirra er tvíbreitt rúm og barnarúm.  Í tveimur herbergjum er  tvíbreið neðri koja, efri koja og útdraganlegt rúm svefnaðstaða fyrir 4 í hvoru og  í herbergi sem er tveggja manna er koja, sú neðri ein og hálfbreidd auk þess eru 3 stakar dýnur í geymslu. Tvö baðherbergi eru í húsinu. Húsið er leigt með sængum og koddum fyrir 16 án sængurfatnaðar. Í húsinu er allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi. Borðbúnaður er fyrir 16, útvarp, sjónvarp, dvd spilari og gasgrill.  Verönd er umhverfis húsið og er þar 7-8 manna heitur pottur.