Raðhús á einni hæð. Úr forstofu er komið inn í opið rými, úr því er gengið inn í svefnherbergin og opið inn í stofu, borðstofu og gott eldhús. Stofan er vel búin húsgögnum og er þar m.a. góður svefnsófi fyrir tvo. Tvö svefnherbergi, tvíbreitt rúm í öðru, hitt er með koju og er neðra rúmið 140 cm á breidd. Svefnaðstaða er fyrir 7 í rúmum og auk þess 3 dýnur, sængur og koddar eru fyrir 10, sængurfatnaður fylgir ekki. Baðherbergi er með sturtu og baðkari. Íbúðinni fylgir allur búnaður sem þarf í venjulegt heimilishald, borðbúnaður fyrir 12, uppþvottavél, útvarp með geislaspilara, sjónvarp og DVD spilari. Gengið er út á verönd úr stofu og eru þar útihúsgögn og gasgrill yfir sumartímann. Gengið er inn í þvottahús úr forstofunni og er þar þvottavél en ekki þurrkari.