Í bústaðnum sem er fyrir 10 er stofa, borðstofa og eldhús í einu rými. Baðherbergi með sturtu. Tvö svefnherbergi, annað með tvíbreiðu rúmi og skápum, hitt með koju. Á svefnlofti er dýnur fyrir 5. Húsið er leigt með sængum og koddum fyrir 10 án sængurfatnaðar. Í bústaðnum er allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi. Borðabúnaður er fyrir 10, eldavél með ofni, útvarp, sjónvarp, dvd spilari og gasgrill, Verönd er umhverfis húsi á þrjá vegu og er þar rafmagns nuddpottur fyrir 5-6. Notalegur bústaður í fallegu og rólegu umhverfi. Bústaðurinn er sunnanmegin við vatnið og ekki aðrir bústaðir nálægt. Brekkan upp að húsinu reynist sumum fólksbílum farartálmi, regnvatn grefur stöðugt undan henni og er því gróf og laus í sér.