Í bústaðnum sem er fyrir 12 er stofa, borðstofa og eldhús í einu rými. Baðherbergi með sturtu. Tvö svefnherbergi, annað með tvibreiðu rúmi og skápum, hitt með rúmi sem er ein og hálf breidd og  koju. Á svefnlofti er dýnur fyrir 6. Húsið er leigt með sængum og koddum fyrir 12 án sængurfatnaðar. Í bústaðnum er allur búnaður sem fylgir venjulegu heimilishaldi. Borðabúnaður er fyrir 12, eldavél með ofni, útvarp, sjónvarp, dvd spilari og gasgrill, Verönd er umhverfis húsi á tvo vegu og er þar rafmagns nuddpottur fyrir 7.