Leita

Tímabil:
 
 
Stærð:
Vinsælar eignir Fleiri eignir >>
  • Kjarnagata 41 - Akureyri

  • Í íbúðinni eru 4 svefnherbergi sem 9 manns geta gist í að hámarki. Stofa og eldhús eru mjög rúmgóð og búin öllum helstu tækjum og tólum. Þvottavél og þurrkari er inn á baðherbergi. Taka þarf með sér rúmföt nema að þau séu sérstaklega pöntuð í bókun en settið er 1.000 kr. á hvern einstakling í bókun.  Þrif og umsýslugjald er 15.000 kr. á hverja bókun. Með þrifum er ekki átt við tiltekt en ætlast er til að íbúð sé skilað í sómasamlegu ástandi. Íbúðin er öll aðgengileg fólki í hjólastólum, þar með talið sturta og salernisaðstaða. Í íbúðinni er að finna lyftara fyrir þá sem þurfa en taka þarf með sér sitt eigið segl ef með þarf. Einnig eru rafdrifnir hurðaopnarar á útidyrum, bæði í sameign og í íbúð. Í hjólageymslu er rafmagnsskutla sem er til afnota á meðan á dvöl stendur.Sjá video 1 hér og video 2 hér Gæludýr eru EKKI leyfð í húsinu. Verðskrá SEM arar: Helgarverð 29.000 kr. Vikuverð 35.000 kr. Aukadagar 1.500 kr. Almennt verð: Helgarverð 35.000 kr. Vikuverð 55.000 kr. Aukadagur 5.000 kr. 15.000 kr. þrifa og umsýslugjald er innifalið í verði. 1.000 kr. á sett fyrir rúmföt (Borgast hjá umsjónarmanni) pantað hjá umsjónarmanni. Almenningur þarf að hafa samband við skrifstofu til að panta tímabil. Komutími/Brottför Íbúðin er afhent frá klukkan 16:00 Komudaga. Skila þarf íbúðinni fyrir klukkan 12:00 á þeim degi sem bókunin endar á. Samgöngur á staðnum Munið að það er frítt í strætó á Akureyri og nálægt íbúðinni er að finna strætóskýli. Á Akureyri er hægt að hringja í leigubíl í síma 461-1010 en beint númer í taxa sem getur tekið allt að 8 farþega og þar af allt að 4 í hjólastólum er 892-4257. Einnig er boðið upp á skoðunarferðir sem aðgengilegar eru hjólastólanotendum.

  • Nánar >>