Íbúðin er 121 m² að stærð á þriðju hæð ásamt 22 fm svölum með svalalokun. Íbúðin er með þremur svefnherbegjum og tveimur baðherbergjum, annað með sturtu og þvottaaðstöðu hitt með salerni og vaski. Eldhús og stofa í opnu rými. gistipláss er fyrir allt að 6 manns í þremur rúmum sem eru 153x200 cm. í hverju herbergi. Eitt ferðabarnarúm er í íbúðinni. Engar aukadýnur.  

Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Gestir þurfa að hafa með sér allan rúmfatnað og ber skylda til að nota hann. Í orlofsíbúðunum í Reykjavík er hægt að leigja lín með því að hafa samband við skrifstofu Sameykis.


Athugið að það eru takmarkanir á leigu í Reykjavík og á Akureyri.

Þeir sem búa í Reykjavík eða á stórhöfuðborgarsvæðinu geta ekki leigt sér íbúðir í Reykjavík.

Þeir sem búa á Akureyri eða í póstnúmerum sem byrja á 600 geta ekki leigt sér íbúðir eða hús á Akureyri.