Í fjölbýlishúsi að Grandavegi 45 á félagið ca 85 fm. 3ja herbergja íbúð á 1. hæð. Svefnpláss er fyrir 6. Almennar upplýsingar um Reykjavík má finna á www.rvk.is

Íbúðirnar í Reykjavík eru eingöngu fyrir félagsmenn af landsbyggðinni. Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Í orlofsíbúðunum í Reykjavík er einnig hægt að leigja lín með því að hafa samband við skrifstofu Sameykis.

Athugið það eru takmarkanir á leigu í Reykjavík og á Akureyri.

Þeir sem búa í Reykjavík eða á stórhöfuðborgarsvæðinu geta ekki leigt sér íbúðir í Reykjavík.

Þeir sem búa á Akureyri í póstnúmerum sem byrja á 600 geta ekki leigt sér íbúðir eða hús á Akureyri.