Íbúðin sem um ræðir er í nýlegu fjölbýlishúsi. þetta er glæsileg 100 fermetra endaíbúð á 3. hæð og henni fylgja tvennar svalir  Lyfta er í húsinu og á  sameiginlegri lóð við bilastæðin er sérstakt hús sem hýsir ruslatunnur fyrir íbúanna. Íbúðin er þriggja herbergja og er svefnpláss fyrir 5. Íbúðirnar í Reykjavík eru eingöngu fyrir félagsmenn af landsbyggðinni.

Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Í íbúðunum í Reykjavík er hægt að leigja lín með því að hafa samband við skrifstofu.

Athugið það eru takmarkanir á leigu í Reykjavík og á Akureyri.

Þeir sem búa í Reykjavík eða á stórhöfuðborgarsvæðinu geta ekki leigt sér íbúðir í Reykjavík.

Þeir sem búa á Akureyri í póstnúmerum 600-604 geta ekki leigt sér íbúðir eða hús á Akureyri.