Á orlofshúsasvæði Sameykis í Bollagörðum í Vaðnesi eru átta hús. Vaðnes er u.þ.b. 75 km. frá Reykjavík, nálægt Kerinu í Grímsnesi. Húsin eru öll eins, 63 fm að stærð með gistimöguleika fyrir 6, þ.e. fyrir utan barnaferðarúm. Húsið er með þremur svefnherbergjum í fyrsta herberginu þegar komið er inn í húsið er rúmið 140x200, í næsta er koja 90x200 og í þriðja herberginu er rúmið 153x200. Tekið skal fram að það eru engar aukadýnur í húsunum. Sængur og koddar eru fyrir 6. 

Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Þetta gildir um öll hús og íbúðir á vegum Sameykis.ATH. Tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla eru staðsett á svæðinu.

ATH. Tvær hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla eru staðsettar á svæðinu.