Húsið sem er um 85m² skiptist í stofu og eldhús í sameiginlegu rými, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Stór verönd með heitum potti, garðhúsgögnum og gasgrilli. Svefnpláss er fyrir 6-7 og það eru ekki aukadýnur í húsinu.  Gistiaðstaðan er þannig að í tveimur herbergjum eru rúmin 153x200  og í einu er koja þar sem neðri er 140x200  og efri 90x200 cm.  
Almennar upplýsingar um landsvæðið má nálgast á www.vesturland.is.