Um er að ræða tvö hús í landi Fellskots á lóð nr. 11. Aðalhúsið er 85 fm. sumarhús með þremur hjónarúmum + ungbarnaferðarúmmi. Gestahúsið er 26 fm. Þar geta fjórir gist en húsið er eitt rými með hjónarúmi og svefnsófa. Í stóra húsinu eru 3 svefnherbergi , stórt eldhús og stofa. Baðherbergi eru í báðum húsum og með sturtum. Í húsunum eru tvö sjónvörp, þrír ísskápar, uppþvottavél og allur almennur búnaður í eldhúsi.  Á lóð er 120 fm körfuboltavöllur, heitur pottur og stór verönd með útigrilli.

Í stóra húsinu eru þrjú svefnherbergi, öll með 153*200 cm rúmmum. 

Í gestahúsinu sem er eitt rými fyrir utan baðiðþ Þar er 153*200cm rúm ásamt svefnsófa sem er 140*200 cm. 

Hundahald er leyfilegt í þessu húsi en öll lausaganga er stranglega bönnuð og það þarf að passa vandlega að þrífa upp eftir þá.   

Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum.