Húsið er um77m² að stærð með gistirými fyrir allt að 6 manns sem skiptist þannig að það er hjónaherbergi,með rúmi sem er 153x200. Kojuherbergi fyrir 2 en kojan er ekki stór eða 85x200 cm Í þriðja herberginu er rúm sem er 135x200 cm. Það eru ekki aukadýnur í húsinu en að öðru leyti er það fullbúið öllum almennum búnaði. Stór verönd er við húsið með heitum potti, garðhúsgögnum og gasgrilli.