Íbúðin í Skálatúni er 4ra herbergja á efri hæð hússins og er hún svo að segja alveg eins og íbúðin í Hamratúni 26. Eina undantekningin er þó að í Skálatúni er ekki verönd eða heitur pottur og gistiaðstaða er fyrir 6 manns.
Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Þetta gildir um öll hús og íbúðir á vegum Sameykis.
Athugið það eru takmarkanir á leigu í Reykjavík og á Akureyri.
Þeir sem búa í Reykjavík eða á stórhöfuðborgarsvæðinu geta ekki leigt sér íbúðir í Reykjavík.
Þeir sem búa á/við Akureyri í póstnúmerum 600-607 geta ekki leigt sér íbúðir eða hús á Akureyri.