Sameyki á tvö hús í Hálöndunum á Akureyri, nánar tiltekið Holtaland 1 og 3. Húsin standa efst í brekkunni og eru rauð að lit vinstra megin þegar  komið er upp götuna. Húsin eru vel útbúin með þremur svefnherbergjum, eldhús og stofa í sameiginlegu rými, eitt baðherbergi og eitt gestaklósett, heitur pottur innan dyra með útgengi á pall. Svefnaðstaða er þannig að það eru 6 stk 90x200 rúm í þremur herberjum en í miðju herbergi eru kojur fyrir ofan rúmin sem eru ætlaðar fyrir þá sem eru undir 70 kg. Eitt barnaferðarúm og barnastóll er í hvoru húsi. Allur almennur búnaður í eldhúsi er fyrir 8-12.  

Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Þetta gildir um öll hús og íbúðir á vegum Sameykis.

Vetrarfærð sjáhttps://www.facebook.com/HalondInfo/

 

Athugið það eru takmarkanir á leigu í Reykjavík og á Akureyri.

Þeir sem búa í Reykjavík eða á stórhöfuðborgarsvæðinu geta ekki leigt sér íbúðir í Reykjavík.

Þeir sem búa á/við Akureyri í póstnúmerum 600-607 geta ekki leigt sér íbúðir eða hús á Akureyri.