Húsið stendur við „Götu mánans hús nr. 5", er um 70 m2. að stærð auk kjallara Gistiaðstaða fyrir 6-8 manns þ.e. tvö hjónaherbergi með rúmum 160 og 140 x200. Koja í barnaherbergi auk þess eru 2 aukadýnur í húsinu og barnarúm

Góð verönd við húsið með útihúsgögnum og heitum potti. Þeir sem þurfa að ferðast um í hjólastól eiga greiðann aðgang að húsinu. Almennar upplýsingar um landsvæðið má finna á www.travelnet.is.

 

Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Þetta gildir um öll hús og íbúðir á vegum Sameykis.

Athugið það eru takmarkanir á leigu í Reykjavík og á Akureyri.

Þeir sem búa í Reykjavík eða á stórhöfuðborgarsvæðinu geta ekki leigt sér íbúðir í Reykjavík.

Þeir sem búa á/við Akureyri í póstnúmerum 600-607 geta ekki leigt sér íbúðir eða hús á Akureyri.