Félagsfólk Sameykis getur sótt um orlofsávísun að andvirði 35000 kr. á sama hátt og sótt er um orlofshús og íbúðir á Orlofshúsavef Sameykis meðan á umsóknarferli sumarúthlutunar stendur. Félagsfólk fær mögulega annað hvort orlofshús eða orlofsávísun úthlutað. Orlofsávísanirnar eru gefnar út í takmörkuðum fjölda og kosta félagsfólk 10 punkta. Orlofsávísanirnar gilda fyrir orlofstilboð innanlands sumarið 2026, frá 29. maí til 21. ágúst og verða því að vera nýttar innan þess tímabils. Félagi sem fær úthlutað orlofsávísun framvísar kvittunum eftir að ferð að eigin vali er lokið og fær andvirði orlofsávísunar greitt inn á bankareikning sinn. Kvittanir verða að vera löglegar frá viðkomandi söluaðila og innan tímabilsins 29. maí til 21. ágúst. Kvittanir verða að vera með nafni og kennitölu félagsmanns til þess að fást greiddar.
Orlofsávísanir gilda innanlands fyrir:
Ekki er hægt að framvísa kvittunum fyrir matarútgjöldum, bensíni og/ eða almennum ferðakostnaði, svo sem fargjaldi í flugi, rútu eða með ferju, nema það sé hluti af skipulagðri hópferð. Ekki er hægt að framvísa kvittunum úr sundlaugum eða baðstöðum. Ekki er hægt að framvísa kvittunum fyrir þjónustu sem Sameyki eða önnur stéttarfélög bjóða sínum félögum.