Íbúðin er 4 svefnherbergja (svefnpláss: 7 einbreið rúm + dýna) og 97,6 fm. Gengið er inn í íbúðina af jarðhæð og úr stofu út á svalir. Gisting fyrir sex manns (auk einnar dýnu). Í stofunni eru tveir 2ja til 3ja sæta sófar auk sjónvarps og útvarps. Eldhús er með eldavél og ísskáp. Eldhúsborð er í íbúðinni auk sex eldhússtóla. Svefnherbergi eru þrjú. Í hjónaherbergi eru tvö 90x200 cm rúm. Í hinum tveimur minni herbergjunum eru tvö samskonar rúm, í hvoru þeirra. Í geymslu er ein auka dýna. Sængur og koddar eru fyrir sjö manns, en ekki er séð fyrir rúmfatnaði. Baðherbergi er með sturtu og þvottavél.