Íbúðin í Hrísey er staðsett um 150 metrum frá Ferjubryggju. Hún er um 76 fm að stærð og með svefnpláss fyrir 6 manns. Tvö svefnherbergi eru, aqnnað herbergið er með tveimur 90x200cm en hitt með tveimur 90x200cm rúmum og koju. Baðherbergi er með sturtu og þar inni er þvottavél. Eldhús og stofa eru eitt rými, en í eldhúsi er ískápur, eldavél, örbylgjuofn, uppþvottavél, kaffivél, brauðrist og leirtau fyrir ca 10 manns. Á verönd sem er um 25 fm eru útihúsgögn og gasgrill.
Ferjan siglir á tveggja tíma fresti, fyrsta ferja fer frá Hrísey kl: 7 alla daga (fyrir utan sunnudaga) og síðasta ferð er kl: 23 frá Hrísey og 23:30 til baka frá Árskógsströnd.
Frá Árskógsströnd fer Ferjan 7:20-9:30-11:30-13:30-15:30-17:30-19:30-21:30-23:30.