Íbúðin er 103 m² að stærð á þriðju hæð ásamt svölum með svalalokun. Íbúðin er með þremur svefnherbegjum, baðherbergi er með sturtu, eldhús og stofa eru í opnu rými. Gistipláss er fyrir 5-6. Svefnaðstaða: Eitt rúm er 160*200 cm, eitt rúm er 140* 200 cm, tvö rúm eru 90*200 cm og eitt barnarúm.  Engar aukadýnur. 

Gestir þurfa að taka með sér baðhandklæði, borðtuskur, salernispappír, ruslapoka, viskustykki og tuskur til þrifa. Það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Gestir þurfa að hafa með sér allan rúmfatnað og ber skylda til að nota hann. 

Athugið að það eru takmarkanir á leigu í Reykjavík og á Akureyri.

Þeir sem búa í Reykjavík eða á stórhöfuðborgarsvæðinu geta ekki leigt sér íbúðir í Reykjavík.

Þeir sem búa á Akureyri í póstnúmerum sem byrja á 600 geta ekki leigt sér íbúðir eða hús á Akureyri.