Um er að ræða 77 m2 parhús sem byggt er árið 1983. Í húsinu eru tvö svefnherbergi. Í öðru er hjónarúm og í hinu er svefnsófi og svefnloft. 6 manns geta gist í húsinu. Leigusali sér um að klútar, þvottaefni og annað sem nauðsynlegt sé fyrir hendi til að þrifa í húsið.

Húsið er fullbúið helstu húsgögnum, raftækjum og búsáhöldum. Ferðabarnarúm og barnastól fylgir. Einnig fylgir útvarp og sjónvarp, gasgrill, útihúsgögn, borðstofuborð, borðstofustólar, sófasett og stofuborð, auk algengustu eldhúsmuna svo sem eldavél með fjórum hellum og bakarofni, örbylgjuofni, ísskáp, kaffikönnu, hraðsuðuketill, þeytari, brauðrist, panna og pottar ásamt öðrum daglegum eldhúsáhöldum. Húsið er með hreinlætistækjum á baði ásamt góðri sturtu. Þvottavél er í húsinu.

Aðrar upplýsingar

 Orlofsgestir eru beðnir um að heyra í umsjónarmanni áður en farið er úr húsi og áður ef komutími er óvenjulegur.