Villa Portofino 5B er 186 m2 raðhús á tveimur hæðum auk þaksvala. Í húsinu eru þrjú svefnherbergi, bílskúr og garður með einkasundlaug. Húsið er staðsett í vesturhluta Los Cristianos í um 10-15 mínútna göngufjarlægð frá ströndinni og í um 15 mínútna akstursfjarlægð frá flugvelli. Stutt er í alla helstu verslun og þjónustu en beint á móti húsinu er verslunarkjarni.

Á jarðhæð er stofa, vel búið eldhús, baðherbergi með sturtu og svefnherbergi. Hægt er að opna út í garð úr svefnherberginu. Á annarri hæð eru tvö rúmgóð svefnherbergi sem hvor um sig hafa sér baðherbergi. Gengt er úr báðum svefnherbergjum út á svalir. Stærri svalir eru á þaki með útsýni yfir svæðið.

Öll rúm eru tvíbreið. Gistipláss er fyrir 7 í húsinu, tvö í hvoru svefnherbergi á efri hæð, tvö í svefnherbergi á neðri hæð og eitt í svefnsófa.