Húsið er gamalt 52 fm að stærð með 3 svefnherbergjum, svefnpláss er fyrir allt að 6 manns. Tvö herbergi eru með hjónarúmum og er koja í einu herbergi. Sængur og koddar eru fyrir 8. Ekki er aukadýna. Barnaferðarúm er í húsinu. Þá er í húsinu gasgrill og útihúsgögn ennfremur allur húsbúnaður sem þarf.