Um er að ræða 65 m2 einbýlishús sem byggt er árið 1906 en hefur verið endurnýjar að öllu leiti bæði að utan sem inna, með útsýni yfir sjóinn. Í húsinu eru tvö svefnherbergi. Í öðru er hjónarúm og hinu koja fyrir tvo (2x90x200 cm). Í stofu er svefnsófi fyrir tvo. . Þá geta allt að 6 manns gist í húsinu svo vel sé. Leigusali sér um að klútar, þvottaefni og annað sem nauðsynlegt sé fyrir hendi  til að þrifa í húsið.

Húsið er fullbúið helstu húsgögnum, raftækjum og búsáhöldum. Ferðabarnarúm og barnastól fylgir. Einnig fylgir útvarp og sjónvarp, kolagrill (gott er að koma með kol og kveikjulög),  útihúsgögn, borðstofuborð, borðstofustólar, sófasett og stofuborð, auk algengustu eldhúsmuna svo sem eldavél með fjórum hellum og bakarofni, örbylgjuofni, ísskáp, kaffikönnu, hraðsuðuketill, þeytari, brauðrist, panna og pottar ásamt öðrum daglegum eldhúsáhöldum. Húsið er með hreinlætistækjum á baði ásamt góðri sturtu. Þvottavél er í húsinu.

Aðrar upplýsingar

Orlofsgestir eru beðnir um að heyra í umsjónarmanni áður en farið er úr húsi.