Húsið er 54m² og skiptist þannig stofa og  eldhús í einu rými, 3 svefnherbergi og baðherbergi. Svefnpláss er fyrir 6, þ.e. fyrir 2 í hjónaherbergi og fyrir 2 í kojum í hvoru barnaherbergi. Í húsinu eru 2 aukadýnur,barnaferðarúm og matarstóll.

Hverju orlofshúsi fylgir bátur til afnota fyrir dvalargesti og er þeim heimil veiði í Eiðavatni. Björgunarvesti eru í húsunum.

Gestir þurfa að taka með sér handklæði, handsápu, salernispappír, viskustykki og tuskur til þrifa. það sem er til staðar eru moppur til að skúra með, áhöld og efni til þrifa. Einnig þurfa gestir að hafa með sér allan rúmfatnað og nota hann í öllum tilfellum. Þetta gildir um öll hús og íbúðir á vegum Sameykis.