Hótelmiðar víðsvegar um landið út árið 2020 

RSÍ bíður félagsmönnum sínum hótelmiða fyrir tvo á 7 Fosshótelum hringinn í kringum landið. Verð fyrir miðann er kr. 8.500 og gildir fyrir tveggja manna herbergi, án morgunverðar. Greitt er aukalega kr. 4.000 ef gist er á fjögurra stjörnu hóteli. Takmarkað magn er á miðum. 

Miðana er hægt að kaupa í gegnum orlofsvef RSÍ eða með því að smella hér.

Eftirfarandi hótel eru í boði: 

Grand hótel*

Fosshótel Reykholt (í Borgarfirði)

Fosshótel Stykkishólmur

Fosshótel Vestfirðir (Patreksfjörður)

Fosshótel Húsavík

Fosshótel Austfirðir (á Fáskrúðsfirði)

Fosshótel Jökulsárlón (í Öræfasveit)*

*Fjögurra stjörnu hótel eru stjörnumerkt.

Félagar eru hvattir til að bóka hótelherbergi sem fyrst til að tryggja nýtingu miða.