Íbúðin er 55 fm að stærð, á neðri hæð í tveggja hæða fjölbýlishúsi. Tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi (152 cm) og kojur fyrir þrjá í hinu. Myndlykill er í íbúðinni og hægt að kaupa tímabundna áskrift að sjónvarpsrásum, leiðbeiningar eru í íbúðinni. Ekki þarf að þrífa íbúðina fyrir brottför en henda skal öllu rusli og hver hlutur á sínum stað. Skylt er að nota sængulín í öll rúm -  Óheimilt er að vera með gæludýr í íbúðinni. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu. 

Þráðlaust net er í íbúðinni

Leiga á líni:

Hægt er að leigja lín og handklæði í íbúðum okkar á Akureyri. Athugið þó að ekki er um uppábúin rúm að ræða.

Ef leigð eru fleiri sett í sömu pöntun fylgir lítið handklæði og baðmotta með
Pöntun skal senda á netfangið mundiafi@mundiafi.is 

Fram þarf að koma: