Endaraðhús í Vestmannaeyjum, Foldahrauni 9. Húsið er 175.5 fm. að stærð á einni hæð með fjórum svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum. Stofa, borðstofa og eldhús mynda alrými.  Innangegnt er í bílskúr búinn afþreyingu.

Húsið er staðsett stutt frá golfvelli og því tilvalið fyrir golfáhugafólk að nýta tækifærið og spila golf í fallegu umhverfi. 

Fjögur svefnherbergi. Svefnpláss fyrir 10. Húsið er vel tækjum búið, þvottavél, uppþvottavél, sjónvarp. Heitur pottur er við húsið. Sængurföt handklæði og annað þess háttar fylgir ekki. Leigjendum er skylt að ganga vel um hús og búnað og skila því hreinu til næstu leigjenda. Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.