Glæsileg 130 fm íbúð á annari hæð (1.sal t.vinstri) í fjölbýlishúsi í Christianshavn og lyfta er í húsinu. Staðsetning er afar góð í göngufæri við miðborgina, söfn,verslanir og veitingastaði. Íbúðin er tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og baðherbergi. Eldhúsið er búið öllum búnaði til matargerða auk uppþvottavélar. Í íbúðinni eru tvö baðherbergi, þvottavél og þurrkari inni á öðru þeirra.  Svefnpláss er fyrir 6 manns í rúmum, þar af fyrir 2 á svefnsófa í stofu. Sængurlín og handklæði  fylgja fyrir 6 manns, ath. aðeins eitt sett á mann pr. leigutíma. Hreint lín er geymt í geymslu við hlið íbúðar (beint á móti stiganum) og þar skal skilja óhreint lín eftir við brottför.  Í íbúðinn er sjónvarp, DVD spilari og internetaðgangur. Athugið með bílastæði á www.parking.dk  Næsta lestarstöð heitir Cristianshavn. 

Upplýsingar um bílastæði og kostnað við að leggja bíl við húsið á að vera hægt að finna á www.visitcopenhagen.com/copenhagen/transportation/parking-zones-prices

Íbúðin er til útleigu eina viku í senn á sumrin og í dagsleigu á veturna.

Ef eitthvað er ábótavant er símanúmer leigumiðlunar hey4you:  +45 2877 0825 eða á skrifstofu félagsins á skrifstofutíma: 580 5200