Íbúðin er rúmlega 100 fermetrar að stærð. Stofa, borðstofa, eldhús, bað og þrjú svefnherbergi. Íbúðinni fylgir barnaferðarúm og barnastóll.
Á baði er sturta og þvottavél, einnig fylgir straujárn og strauborð. Í íbúðinni eru rúm og sængur fyrir 7 manns. Í eldhúsi er borðbúnaður er fyrir 12 og uppþvottavél. Leigjendur verða sjálfir að koma með sængurlín, handklæði og diskaþurrkur. Netenging frá Vodafone, leiðbeiningar í íbúðinni. Skylt er að nota sængulín í öll rúm - Óheimilt er að vera með gæludýr í íbúðinni.