Glæsilegt 90 fm. hús með 3 svefnherbergjum og svefnplássi fyrir 10 manns. Í öllum herbergjum eru tvíbreið rúm (stærðir: 167x205cm og 153x205cm, allt heilar dýnur) og auk þess kojur í tveimur herberjum (stærð: 74x200cm) einnig fylgir húsinu ferðabarnarúm og barnastóll. Húsið er búið öllum helstu þægindum s.s flatskjá í stofu og hjónaherbergi, DVD og CD spilara, stórum tvískiptum ísskáp, uppþvottavél, þvottavél, sér baðaðstöðu við heita pottinn. Í húsinu er stórt alrými, hiti í gólfum og vandað hefur verið til allra innréttinga og húsbúnaðar. Á þrjá vegu umhverfis húsið er stór verönd að hluta til undir þaki, heitur pottur, baðhús og geymsla með þvottavél, glæsileg útihúgögn og gasgrill. Internet-tenging er í húsinu. Leiðbeiningar eru í húsinu með tengingar.
Húsið er í útleigu allt árið. Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.

Aðstaða til leikja og útivistar á svæðinu er glæsileg og opin fyrir alla er svæðið gista. Þarna má finna: Fótboltavöll, körfuboltavöll, púttvöll, par 3 golfvöll, stór hoppubelgur, margs konar leiktæki og margt fleira. Veiði er leyfð í vatninu frá bökkum þess og allt að 10 metra frá landi, á sumrin er hægt að leigja bát hjá umsjónarmanni.