Íbúðin er tæplega 85 fermetra,  í alrými er stofa, borðstofa og eldhús. Svefnherbergi með hjónarúmi og annað herbergi með hjónarúmi og koju (efri koja 90 x 200 cm. - neðri koja 120 x 200 cm), svefnpláss fyrir allt að 7 manns. Íbúðinni fylgir barnaferðarúm (barnasæng og koddi fylgja ekki) og barnastóll.  Á baði er sturta og þvottavél, einnig fylgir straujárn og strauborð.
Í íbúðinni eru sængur  og koddar fyrir 7 manns. Í eldhúsi er nauðsynlegur búnaður og tæki til heimilishalds og borðbúnaður fyrir 12 manns, auk þess er uppþvottavél. Leigjendur verða sjálfir að koma með sængurlín og handklæði. Nettenging frá Vodafone, leiðbeiningar í íbúðinni -Skylt er að nota sængurlín í öll rúm - Óheimilt er að vera með gæludýr í íbúðinni.