Í húsinu eru 2 svefnherbergi, með svefnplássi, sængum og koddum fyrir 6 manns auk þess barnarúm og barnastóll. Í báðum herbergjum eru tvíbreið rúm (ein dýna). í alrými er eldhús, borð-og setustofa auk sólstofu. Í eldhúsi er eldavél og ísskápur í fullri stærð, uppþvottavél og almenn áhöld til matagerðar. Rúmgott baðherbergi með sturtu. Á suð/vestur verönd er heitur pottur, útihúsgögn og gasgrill. Heilsárs hús og til útleigu allt árið. Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.

Við móttökuna í Ölfusborgum er búið er að setja upp tvær rafhleðslustöðvar sem gestir geta nýtt sér.