Húsið er með einu svefnherbergi, alrými og eldhúskrók. Pláss er fyrir 4, tvíbreið neðri koja, tvær einbreiðar efri kojur og barnarúm. Baðherbergi með sturtu. Húsinu fylgja sængur og koddar fyrir 4 -Skylt er að nota sængurlín í öll rúm -  Í eldhúskrók er hellu borð, ísskápur og örbylgjuofn. Sjónvarp er í húsinu og einnig fylgir gasgrill.
Óheimilt er að vera með gæludýr í eða við húsið. Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.