Í húsinu eru 2 svefnherbergi, tvíbreið rúm (150 cm) í báðum herbergjum að auki fylgir ferðabarnarúm og barnastóll. Svefnaðstaða er fyrir 4 manns og húsinu fylgja sængur og koddar fyrir jafnmarga. - Skylt er að nota sængurlín í öll rúm - Í alrými er stofa, borðstofa og eldhús, uppþvottavél er í eldhúsi þvottaefni fylgir ekki. Þvottavél er í húsinu. Í baðherbergi er sturta. Húsinu fylgir bátur og í útigeymslu eru árar og björgunarvesti, í sömu geymslu er gasgrill og útihúsgögn. Ekki er þráðlaust net í húsinu. Hundar velkomnir.  Öll notkun dróna er bönnuð á orlofshúsasvæðunum, brot á því geta varðað brottvísun af svæðinu.