Húsið er í Hálöndum fyrir ofan Akureyri. Það er við veginn sem liggur upp í skíðasvæðið í Hlíðarfjalli. Húsið er 90 fm með 3 svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, stofu, eldhúsi og geymslu. Tvö svefnherbergi eru með hjónarúmi, (153x200) þriðja herbergið er með 2 kojum, báðar eru þær 90 cm á breidd og 2 metrar á lengd.

Ferðabarnarúm og barnastóll eru í húsinu. Á steyptum palli er heitur pottur og útiborð. Hurð er út úr einu baðherbergjanna til að fara út að pottinum.

Í geymslu er þvottavél og þurrkari. Þar er einnig hægt að geyma t.d. skíði og/eða útifatnað. Ekki þarf að þrífa við brottför en skila þrifalegu og henda rusli. Skylt er að nota sængulín í öll rúm - Óheimilt er að vera með gæludýr í húsinu.

Frábært útsýni er út um glugga hússins bæði til austurs og suðurs.

Leiga á líni:

Hægt er að leigja lín og handklæði í íbúðum okkar á Akureyri. Athugið þó að ekki er um uppábúin rúm að ræða.

Ef leigð eru fleiri sett í sömu pöntun fylgir lítið handklæði og baðmotta með
Pöntun skal senda á netfangið mundiafi@mundiafi.is 

Fram þarf að koma: