Í húsinu eru 3 svefnherbergi, eitt hjónaherbergi og tvö minni með tveimur einbreiðum rúmum.  Í húsinu er eitt baðherbergi.  Eldhús og stofa eru samliggjandi og vísa í vestur með útsýni yfir hafið.  Húsið er búið húsgögnum og eldhúsáhöldum, á baði er hárþurrka og þvottavél.  

Miðbær Hvammstanga er í 7 mínútna göngufjarlægð frá húsinu en þar má finna veitingastaði, kaffihús, matvöruverslun. Það eru aðeins 400 m í sundlaug og íþróttahús sem búið er þreksal.